Leitaðu

Smelltu á flokk

Nýttu þér tilboðin

Nýir Mazda á tilboði

Brimborg á Facebook

Ítarefni

Hér fyrir neðan er tengill á ýmislegt
áhugavert ítarefni

Lesa áhugavert ítarefni

Mazda fréttir

Mazda | fim. 19. jan. 2012
Mazda CX-5 er með minnstu eldsneytisnotkun í sínum flokki

Mazda tilkynnti nýlega tölur um eldsneytisnotkun fyrir árgerð 2013 af CX-5 sportjeppanum en athugunin var framkvæmd af EPA, bandarískri umhverfisverndarstofnun. Tölurnar fyrir eldsneytisnotkun leiddu í ljós að hjá CX-5 er eldsneytisnotkun í innanbæjarakstri 9 l/100 km og í langkeyrslu 6,7 l/100 km. Í blönduðum akstri er eldsneytisnotkun CX-5 sportjeppans 8,1 l/100 km.

Meira »
Mazda | fim. 15. des. 2011
Mazda Takeri, hugmyndabíll með fullt af tækninýjungum

Hugmyndabíllinn Mazda Takeri hefur nýlega verið heimsfrumsýndur á bílasýningunni í Tókýó. Takeri endurspeglar þann styrk og fágun sem fylgir nýrri hönnunaraðferð, „KODO – uppsprettu hreyfingarinnar“ og nýju SKYACTIVE-tækninni. Með hugmyndabílnum er gefin sterk vísbending um hvernig komandi kynslóðir Mazda fólksbíla munu líta út. Takeri er með marga af sömu hönnunareiginleikum og Shinari, síðasti hugmyndabíllinn frá Mazda. Hann er með nýrri og umhverfisvænni díselvél, SKYACTIVE-D, einstöku stopp-/startkerfi, i-STOP, sem er með eldsneytissparandi búnað í borgarakstri ásamt nýþróuðu kerfi til að endurnýta hemlunarorku, sem Mazda kallar i-ELOOP. Nýja díselvélin er með 6-gíra sjálfskiptingu, SKYACTIVE-Drive og vitanlega SKYACTIVE-undirvagni og SKYACTIVE-yfirbyggingu. Allir þessir eiginleikar gera það að verkum að Takari er sparneytinn án þess að það sé á kostnað aksturseiginleika bílsins.

Meira »
Mazda | fös. 2. des. 2011
Betra bílverð á Mazda í desember. Stórsýning Brimborgar laugardaginn 3. desember milli 12 og 16

Jólin eru í Brimborg og eru starfsmennirnir svo sannarlega komnir í mikið jólaskap. Á laugardaginn 3. desember milli kl 12 og 16 ætlum við að opna dyrnar upp á gátt á Bíldshöfða 8 og vera með stórsýningu á nýjustu Mazda bílunum þar sem hægt verður að eignast nýjan Mazda bíl á lækkuðu verði með allt að 220.000 kr. afslætti. Mazda bílarnir eru japanskir gæðabílar og þekktir fyrir áreiðanleika. Öllum nýjum bílum fylgja hágæða Nokian vetrardekk.

Meira »
Mazda | fös. 18. nóv. 2011
Mazda | fös. 11. nóv. 2011
Mazda | fös. 7. okt. 2011
Fleiri fréttir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli