Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda5 • Um Mazda5 

19. maí 2012

Skoða PDF: Mazda5 bæklingur

Sæti fyrir 7 og breytilegt rými

Í upphafi var autt blað. Öllum fyrirfram ákveðnum reglum var hent út af borðinu þegar hugað var að ytri hönnun, útliti og öryggi Mazda5. Niðurstaðan er hinn fullkomni 7 manna fjölskyldubíll með sterkum persónuleika, þægindum og fullkomnum öryggisbúnaði. Mazda5 verður ekki flokkaður með öðrum. Nú færðu loks hið fullkomna tækifæri til að njóta aksturs- og ferðagleði þinnar til hins ýtrasta á sama tíma og Mazda5 uppfyllir þarfir þínar og fjölskyldunnar fyrir fleiri sæti og gott rými. Nú þarftu ekki lengur að safna orku til að takast á við endalausar áskoranir hversdagsins. Ferðir og ferðalög hætta að vera vandamál: Njóttu lífsins með bros á vör í Mazda5.

Þú finnur hve unaðslega einfalt það er að leggja af stað í ferðalagið þegar Mazda5 er annars vegar. Sama hvert förinni er heitið. Rennihurðirnar svífa á sleða sínum og börnin setjast glöð í sæti sitt. Allt gerist án fyrirhafnar og fjölskyldan ekur ánægð af stað. Þú leggur niður sætin á mismunandi hátt – allt eftir tilefninu - og setur farangurinn um borð. Farþegar í miðjuröðinni nota borðið fyrir framan sig. Það er svo þægilegt - eins og í flugvél! Hver og einn stillir sinn höfuðpúða eftir eigin höfði. Í vetur farið þið kannski á skíði. Þá er tilvalið að setja skíðin á þakbogana – eða leggja þau á gólfið aftur í. Þú ræður. Mazda5 er til í allt.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli