Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda2 • Um Mazda2 

19. maí 2012

Skoða PDF: Mazda2 bæklingur

Nýr og endurhannaður Mazda2 er einstakur bíll

Nýr Mazda2 hefur aldrei verið glæsilegri, hagkvæmari í rekstri og vinsælli en einmitt nú. Bíllinn hefur verið endurhannaður frá grunni og er hann nú betur búinn en áður en jafnframt léttari. Bíllinn hefur fengið einstaklega lofsamlega dóma á öllum mörkuðum, bæði meðal eigenda en ekki síður hjá bílagagnrýnendum, einnig hér á landi.

Gjörbreytt útlit

Markmið hönnuðanna var að skapa einstakt og krafmikið útlit sem endurspeglaði sportlegt yfirbragð bílsins. Þess vegna er skörpum og mjúkum útlínum blandað saman. Útkoman er kraftmikill heildarsvipur, jafnt að utan sem innan. Mazda2 var valinn Bíll ársins 2008 í Danmörku og var í öðru sæti í vali á Bíl ársins 2008 í Evrópu.

100 kg léttari

Annað meginmarkmið hönnuða Mazda2 var að létta bílinn frá því sem var án þess að draga úr öryggi hans í umferðinni. Er bíllinn nú aðeins 955 kg eða 100 kg léttari en fyrirrennarinn, þrátt fyrir að búið sé að auka öryggisbúnað hans. Þessi 100 kíló sem horfin eru þykja skila sér afar vel í betri og skemmtilegum aksturseiginleikum.

Minni útblástur

Einnig hefur Mazda náð góðum árangri við að draga úr útblæstri skaðlegra lofttegunda frá bílum sínum. Er hinn nýi Mazda2 þar engin undantekning enda er útblásturinn nú 22% minni en í eldri gerð, og nú með því minnsta í flokki smábíla.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli