Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda3 • Um Mazda3 

19. maí 2012

Skoða PDF: Mazda3 bæklingur

Nýr Mazda3 er Aiki, fullkomið jafnvægi milli hins harða
og mjúka

Horfðu á Mazda3 og sjáðu línurnar og flæðið og ímyndaðu þér hvaða hugsun liggur að baki hönnunar bílsins. Aiki er í japanskri heimspeki hápunktur orkunnar í samhljómi umhverfisins, leiðin til að sigra án þess að drottna. Þannig er Mazda3.

Mazda3 setur á oddinn eiginleika sem skipta máli. Glæsilega og nútímalega hönnun. Hönnun sem er formrík en ekki blendin, hönnun sem er gagnleg en ekki eingöngu punt. En til að geta holdgervt slíka eiginleika er nauðsynlegt að kunna jafnvægislistina upp á tíu – og það kann Mazda3, prófaðu bara og finndu hvernig Mazda3 er í akstri! Mjúkur þegar þannig liggur á þér, lipur, snar og skarpur þegar mikið liggur við.

Vinsæll og vandaður

Nýr Mazda3 er einn vinsælasti bíll Mazda. Einn þriðji allra seldra Mazda bíla er af gerðinni Mazda3 og fyrir því eru góðar og gildar ástæður.

Mazda3 er skemmtilegur, þægilegur og auðveldur í notkun en Mazda3 hefur samt það sem þarf til að temja veginn. Gleði ökumanns er markmið Mazda3 og hönnun bílsins endurspeglar það. Sjáðu kraftalegar línurnar, brotin í kringum framljósin og eftir hliðinni. Sjáðu vel formað loftinntakið og áberandi frambrettin. Það virðist sem Mazda3 sé á hreyfingu þó hann standi kyrr.

Það er því ekki undarlegt að Mazda3 sé leiðandi í sínum flokki í lágri loftmótsstöðu. Það hefur mikið að segja í sparnaði, það er lengra á milli heimsókna á bensínstöðvar á sparneytnum bíl eins og Mazda3.

Mazda3 er líka þekktur fyrir áreiðanleika. Síðustu árin hafa Mazda bílar verið í efstu sætunum í áreiðanleikakönnunum, núna síðast í nóvember 2009 þegar Warranty Direct staðfesti að 92% Mazda bíla, þriggja til níu ára gamlir, biluðu ekki neitt.

Mazda3 sameinar tvo heima

Afl og lipurleiki er japanska aðferðafræðin í hnotskurn. Mazda3 býður nokkuð sem erfitt er að sameina, áreiðanleika og japanska nákvæmni eins og hún gerist best annarsvegar, og hinsvegar japanska hönnun, heimspeki og aga sem Japanir eru fyrir löngu þekktir fyrir. Mazda3 er því í fullkomnu jafnvægi, það besta úr tveimur heimum, heimi rökhyggjunnar og heimi ástríðunnar. Mazda3 er útkoma einbeitingar, upplýsingar og fræðilegrar þekkingar, klædd í búning ástríðunnar.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli