Nýr og endurhannaður Mazda6. Af þessum sportlega fjölskyldubíl stafar hreysti og sjálfsöryggi, hvort heldur litið er til straumlínulagaðrar hönnunar eða skarpleitra framljósa. Þetta er ríkulega búinn bíll sem kann og getur; kann að dekra við skilningarvitin og getur að auki uppfyllt allar kröfur um hagkvæmni og notagildi.
Fágun með dýpt
Innanverð hönnun í nýjum Mazda6 snýst um fágað efnisval og þægilegt andrúmsloft. Þetta er bíll fyrir þá, sem kunna að meta samspil forms og fegurðar við þægindi og japönsk gæði. Hjólhafið er ívið lengra en hjá forveranum og meira rými er því í boði fyrir jafnt farþega sem farangur og þökk sé endurbættri hljóðeinangrun, þá er nýr Mazda6 einn hljóðlátasti bíllinn í sínum flokki. Framsæti eru upphituð, handhægar stillingar eru í stýri fyrir hljómtæki og regnskynjari annast alfarið stjórn á rúðuþurrkum. Þá sér tvöföld loftkæling hvoru framsæti fyrir sínu hitastigi og sérstakt þvottakerfi er fyrir aðalljós, auk þess sem fimmþrepa sjálfskipting er meðal staðalbúnaðar. Það eina sem þú þarft að gera, er að njóta akstursins til fulls í stílhreinu umhverfi Mazda6.
Dýpra öryggi
Nýr Mazda6 er frá öllum hliðum séð, búinn nýjustu öryggistækni. Rammgerðar árekstrarvarnir verja ökumann og farþega og vel hönnuð sætin veita á ögurstundu rétta stuðninginn á réttu stöðunum. DSC stöðuleikastýrikerfi með TCS spólvörn heldur akstursstefnu bílsins stöðugri í möl, hálku eða kröppum beygjum og hemlakerfið er af fremstu gerð, búið ABS aflhemlun, EBD hemlajöfnun og EBA hjálparhemlun. Fyrir vikið lætur nýr Mazda6 enn betur að stjórn, jafnvel við erfiðar aðstæður. Þá eru öryggispúðar alls fjórir að framanverðu. Öryggispúðatjöld eru á báðum hliðum auk þess sem Mazda6 er með Isofix-festingar fyrir barnabílstóla og þriggjapunkta öryggisbelti í öllum sætum. Þú er öryggið upp málað á Mazda6.
Aksturseiginleikar með dýpt
Nýr og endurhannaður Mazda6 snýst um aksturseiginleika í sinni hreinustu mynd. Straumlínulagaðri og snarpari sprettur hann af stað með tvöfalda Y-laga fjöðrun að framan og mun stífari yfirbyggingu, sem heldur titringi í lágmarki. Hárfín þyngdarstilling stýrisins veitir akstrinum næmari og skemmtilegri svörun og þar sem endurhönnuð sjálfskiptingin skiptir sér áreynslulaust, verður akstur Mazda6 að hreinræktaðri ánægju. Þá tryggir þessi framsækna hönnun þér ekki aðeins framúrskarandi aksturseiginleika, heldur einnig hagkvæmari, enda notar þessi straumlínulagaði og léttbyggði bíll minna eldsneyti en ella. Njóttu lífsins. Til þess er Mazda6.
Djúpgræn tækni
Í nýjum Mazda6 ganga afköst, hagkvæmni og umhverfisvernd í takt. Galdurinn á bak við MZR 2.0 l vélina felst í S-VT og VIS kerfunum sem byggja á breytilegri ventlatækni, en í sameiningu sjá þau til þess að vélin nýtir eldsneytið til síðasta dropa. Þó að þessi frumkvæða og þýða 147 hö vél, skili því sínu í afköstum og gott betur, þá er hún á sama tíma sparneytin og um leið umhverfishæfari. Með hliðsjón af forveranum, notar nýr Mazda allt að einum lítra minna af eldsneyti á 100 km og losar rúmlega 20 g/km minna af CO2 í blönduðum akstri. Vertu vænn við umhverfið, um leið og þú sparar peninga.
Dýpra úrval
Nýr og endurbættur Mazda6 fæst í ólíkum útgáfum, allt eftir þínum áherslum. Veldu á milli þess að fá þér nýjan sjálfskiptan Mazda6 sem 4 dyra, 5 dyra eða 5 dyra station með kraftmikilli en sparneytinni MZR 147 hö/184 Nm vél. Í 4 dyra og 5 dyra útgáfunni er bensínnotkun aðeins 7,7 l/100 km og CO2 losun ekki nema 182 g/km CO2 í blönduðum akstri. Sem 5 dyra station er