Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

19. maí 2012
Mazda | mán. 14. júl. 2008

Mazda Biante er ferskur blær á markaðnum

Mazda Biante er ferskur blær á markaðnum
Mazda kynnir um þessar mundir nýjan Mazda Biante fjölnotabíl sem seldur verður á Japansmarkaði. Mazda Biante er nýjung á markaðnum, af þessari gerð bíla, og vekur víða athygli fyrir óvenjulegt útlit.

Mazda Biante er draumabíll fyrir útsýnisþyrsta

Mazda Biante var framleiddur sérstaklega fyrir Japansmarkað undir mottóinu: „Sjáið og upplifið svo súmm, súmm tilfinninguna í hærri fjölnotabíl, sem uppfyllir drauma ykkar.“ Og Biante hefur allt sem þarf til að uppfylla drauma bílkaupandans. Ytri hönnunin er ólík öllu öðru sem sést hefur á markaðnum hingað til, því þakið er óvenju hátt og rúðurnar stórar svo hægt sé að njóta útsýnisins sem best.

Nægt pláss og góð lykt í Biante

Innréttingin er ekki síður til þess fallin að auka þægindi bílferðalanga, því farþegarýmið er stórt og flæðandi. Með auðveldu handtaki má færa sætaraðirnar aftur um 86,3 cm og skapa aukið fótapláss og betra aðgengi. Mazda framleiðandinn hefur einnig lagt sitt af mörkum til að stuðla að bættu andrúmslofti í bílferðum því í bílnum má finna lykteyðandi búnað sem dregur í sig óvelkomna lykt. Rennihurðarnar á hliðum eru líka afar þægilegar í notkun og búnar snertiskynjara sem kemur í veg fyrir að þær lokist ef eitthvað er í veginum.

Mazda Biante er vistvænn „súmmari“

Biante gefur að sjálfsögðu öðrum „súmmurum“ ekkert eftir þegar kemur að akstrinum enda sannur Mazda bíll frá toppi til dekkja. Hann verður fáanlegur með 2,0 og 2,3 lítra vél, beinni innspýtingu og 5-gíra skiptingu. Allar gerðir Biante gefa frá sér lágmarks útblástur, eða 75% undir viðmiðunarmörkum sem sett voru í Japan 2005. Biante er því ekki bara draumabíll í útliti og hönnun, heldur líka visthæfur í akstri.

Nánari upplýsingar

Greinin í heild á heimasíðu Mazda

Myndir og myndband af Mazda Biante

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli