Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

19. maí 2012
Mazda | mið. 28. sep. 2005

Meira úrval hjá Mazda en áður

 

Um mitt þetta ár hófst Brimborg handa við að panta fyrstu Mazda bílana. Í fyrstu sendingu koma Mazda3, Mazda6, sportbíllinn Mazda RX-8 og svo nýr Mazda5 sem er 7 manna og fyrsti bíllinn í sínum stærðarflokki með rennihurðum. Mazda5 hefur hlotið frábæra dóma í erlendum bílablöðum enda er bíllinn mjög vel útbúinn og á verði sem kemur á óvart. Mazda6 hefur fengið útlitsbreytingu, aukið afl og 5 þrepa sjálfskiptingu. Mazda3 verður boðinn á verði frá kr. 1.690.000 sem er lægra verð en áður hefur þekkst. Sama má segja um allar aðrar gerðir Mazda bíla sem Brimborg býður uppá. Brimborg mun bjóða allar gerðir Mazda bíla með meiri búnaði en áður hefur tíðkast og má þar meðal annars nefna stöðugleikastýrikerfið DSC og margt fleira.

Mazda eigendur velkomnir

Brimborg er nú þegar byrjað að taka við pöntunum á Mazda bílum og býður fyrirtækið núverandi eigendur Mazda sérstaklega velkoma til Brimborgar; umboðsaðila Mazda á Íslandi. Um leið og framkvæmdum lýkur við nýtt húsnæði fyrir Mazda mun Brimborg bjóða uppá heildarlausnir fyrir Mazda eigendur, nýtt bílaverkstæði, nýja varahlutaþjónustu og sölu á nýjum og notuðum Mazda bílum.

Verið velkomin.

Með kveðju frá starfsfólki Brimborgar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli