Mazda hefur gefið áhugamönnum um hugmyndabíla forsmekkinn af nýjasta Mazda framtíðarbílnum, Kazamai. Honum svipar til Nagare hugmyndabílsins en hefur þó eigin sérkenni sem sjá má á næstunni á bílasýningunni í Moskvu.
Mazda framleiðandinn hefur birt myndir af Kazamai hugmyndabílnum sem verður frumsýndur á Alþjóðlegu bílasýningunni í Moskvu, sem hefst 26. ágúst næstkomandi. Kazamai, sem útleggst sem hringiða eða feykivindur (e. swirling crosswinds), mun áreiðanlega valda fjaðrafoki þegar hann verður frumsýndur því hann hefur þegar vakið mikla athygli meðal bílaáhugamanna.
Útlit Kazamai, sver sig í ættina við Mazda Nagare hugmyndabílinn enda er hönnun hans frekari þróun á léttleikanum og flæðinu í Nagare hönnuninni. Kazamai er sportlegur og kraftmikill bíll sem brúar bilið milli sportbíls og jeppa. Hugmyndabíllinn er með 22 tommu dekk, fjórhjóladrif og inniheldur nýjustu kynslóðina af beinni innspýtingarvél frá Mazda.
Mazda Kazamai lofar því góðu fyrir frumsýninguna í Moskvu, sem hann var sérstaklega hannaður fyrir. Bílamarkaðurinn í Rússlandi er nú í hröðum vexti og sala á jepplingum er sú næststærsta á markaðnum þar, eða um 13% af heildarsölu nýrra bíla. Viðbrögðin á frumsýningunni munu því að öllum líkindum hafa sitthvað að segja um hvort Kazamai muni fara í framleiðslu og hefja innreið sína á markaðinn með stormsveip.