Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

19. maí 2012
Mazda | mið. 28. sep. 2005

Frábærar viðtökur við Mazda hjá Brimborg

Þann 1. október síðastliðinn tók Brimborg formlega við umboði fyrir Mazda á Íslandi en tilkynnt var um þessar breytingar þann 1. september. Síðan þá hafa viðbrögð eigenda Mazdabifreiða og annarra viðskiptavina verið einstakaklega mikil og ánægjuleg. Fjöldi viðskiptavina hefur staðfest pantanir en Brimborg fær fyrstu bílana til landsins í vikunni. 

Nýtt og glæsilegt Mazda umboð

Fyrirtækið mun í næsta mánuði hefja sölu á Mazda og veita alhliða þjónustu samkvæmt gæðastöðlum Mazda í nýju og glæsilegu húsnæði við Bíldshöfða 8, á lóðinni við hlið Brimborgar við Bíldshöfða 6, eða þar sem Bifreiðaeftirlitið var til húsa í eina tíð. Framkvæmdir við nýtt húsnæði Mazda ganga mjög vel og gera áætlanir ráð fyrir að formleg markaðsfærsla á Mazda, undir fána Brimborgar, hefjist í næsta mánuði eða jafnskjótt og framkvæmdum lýkur.

Nýr Mazda vefur

Brimborg hefur nú opnað nýjan og glæsilegan vef fyrir Mazda á Íslandi. Þar koma fram allar upplýsingar um breiða vörulínu sem Brimborg mun bjóða frá Mazda. Smelltu hér til að skoða. Mikill búnaður. Frábært verð.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli