Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

19. maí 2012
Mazda | fös. 15. ágú. 2008

Vetnisvél möguleg í nýjum Mazda RX-8

Vetnisvél möguleg í nýjum Mazda RX-8
Auto Express upplýsti nýlega um vetnisknúna vél sem að öllum líkindum fylgir nýjustu kynslóð Mazda RX-8.

Getgátur um nafn á nýjum RX-8

Bílablaðið Auto Express hefur þetta eftir áreiðanlegum heimildarmönnum hjá Mazda og giskar jafnframt á að hinn visthæfi sportbíll, komi til með að hljóta nafnið RX-9 til aðgreiningar frá forvera sínum. Nýja kynslóðin mun geta gengið bæði fyrir vetni og bensíni en þessar getgátur verða að teljast nokkuð sann- færandi, með tilliti til þess að Mazda framleiðandinn hefur verið að prófa sig áfram á þessum vettvangi í nokkur ár.

Bætt um betur í nýjum Mazda RX-8

Í því skyni að minnka eldsneytisnotkun og útblástur, setti Mazda vetnisvél í RX-8 Hydrogen RE, strax fyrir um fjórum árum og hefur verið að þróa slíkar vélar síðan. Til að sporna gegn krafttapi sem óneitanlega fylgir vetnisvélum, mun Mazda vera að þróa nýja RX-8 vetnisbílinn með innanbæjarökumenn í huga, en jafnframt gefa þeim möguleika á að skipta yfir í bensínkeyrslu þegar færi til hraðari aksturs gefst. Með þessum hætti, hyggst Mazda betrumbæta frammistöðu, sparneytni og útgufun frá rótgrónum rótarývélum sínum. Auto Express telur líklegt að hinn nýi og visthæfi RX-8 verði kominn í sölu 2012.

Nánari upplýsingar

 

Greinin í heild á Auto Express


Frétt um fyrsta RX-8 Hydrogen bílinn


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli