Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

19. maí 2012
Mazda | fim. 16. okt. 2008

Mazda Kiyora framleiðir drykkjarhæft vatn

Mazda Kiyora framleiðir drykkjarhæft vatn


Hvern hefði grunað að hægt væri að safna regnvatni á ferð í bíl og svala sér svo á því? Líklega eru þeir ekki margir sem hefðu getað gert sér slíkt í hugarlund. Hönnuðir Mazda Kiyora hugsuðu þó fyrir þessu.

Mazda Kiyora svalar þorstanum

Mazda Kiyora hugmyndabíllinn sem kynntur var á bílasýningunni í París, hefur verið útbúinn með svonefndu LIFESAVER Bottle Citi – kerfi. Heitið er vissulega réttnefni því búnaðurinn gæti bjargað mannslífi, eða allavega bjargað manni frá ofþornun. LIFESAVER flöskukerfið er búnaður sem safnar saman regnvatni á þaki Kiyora og lætur það renna í þartilgerða flösku sem hreinsar vatnið. Flaskan er staðsett mitt á milli framsætanna þannig að allir farþegar geti teygt sig í hana þegar þorstinn gerir vart við sig.

Hreint og tært drykkjarvatn

Sérstök sía og hreinsibúnaður sér um að gera vatnið bakteríufrítt og fullkomlega drykkjarhæft. Flöskuna er svo hægt að fjarlægja úr bílnum og nota til að fylla á úti í náttúrunni, ef lítið er um rigningu, eins og í lækjum eða ám sem verða á vegi manns.

Nánari upplýsingar

 
Bloggað um Kiyora vatnsbúnaðinn



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli