Fyrsti Mazda bíllinn var afhentur 11. nóvember í húsakynnum Brimborgar við Bíldshöfða 6. Bíllinn er af gerðinni Mazda3 Sport og er hlaðinn staðalbúnaði, svo sem ABS diskahemlum á öllum hjólum, EBD hemlajöfnun, EBA hemlahjálp, DSC stöðugleikastýringu, þriggja punkta öryggisbeltum við öll sæti, stillanlegum höfuðpúðum á öllum sætum, loftpúðum fyrir ökumann og farþega í framsæti ásamt hliðarloftpúðum í sætum, loftpúðagardínum framan og aftan, dagljósabúnaði, 17” álfelgum, Xenon framljósum, hreinsibúnaði á framljósum, díóðuafturljósum og fjölmörgu öðru.
Á myndinni tekur María Björk Guðmundsdóttir við lyklunum úr hendi Þórðar Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Mazda á Íslandi.
Við óskum Maríu Björk til hamingju með nýja bílinn.