Mazda3 verður enn sparneytnari með tilkomu stopp/start tækni Mazda.
Mazda3 mun innan árs verða orðin enn sparneytnari en Mazda hefur tilkynnt að stopp/start kerfi fyrirtækisins, svokallað SISS kerfi, verði komið í Mazda3 bifreiðarnar fyrir lok þessa árs. Með innleiðslu þessa kerfis mun sparneytni Mazda3 aukast til muna, neytendum til mikilla heilla.
Bensíneyðsla lágmörkuð
Stopp/start tækni gengur út á að lágmarka eyðslu bifreiðar með því að drepa á vélinni þegar bifreiðin staðnæmist, til dæmis á umferðarljósum. Með þeim hætti verður hægt að auka hagkvæmni bifreiðarinnar til muna. Stopp/start kerfið verður fyrst um sinn fáanlegt fyrir Mazda3 bifreiðar með 1.6 eða 2.0 lítra bensínvélunum en kerfið verður hinsvegar ekki fáanlegt fyrir dísilknúnar Mazda3. Innleiðing stopp/start kerfisins í Mazda3 bifreiðarnar á einungis við Evrópumarkað.
Hagkvæmnin mun aukast enn meira
Mazda lætur sér þó ekki nægja að auka hagkvæmni Mazda3 með innleiðingu stopp/start tækninnar heldur mun fyrirtækið á næsta ári kynna til sögunnar nýjan gírkassa sem mun geta aukið sparneytni bifreiðarinnar enn frekar.