Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

05. febrúar 2012
Mazda | fim. 26. mar. 2009

Biðin styttist í Mazda3

Brosandi viðmót Mazda3
Nýja Mazda3 2009 línan verður komin í almenna sölu í Bretlandi í maí. Það eru hvorki meira né minna en 15 útgáfur í boði. Bæði hlaðbakurinn og fólksbílaútgáfan hafa yfirbyggingar sem sýna kröftugri og tjáningarríkari hönnun.

Minni útgáfa Mazda6 bílsins

Að mörgu leyti er nýja Mazda3 eins og ‘barnaútgáfa’ Mazda6 þar sem hún færir C-flokknum fágaðar línur Mazda6. Ferskt viðmót Mazda3 kallast á við nýlega uppfærðar útgáfur Mazda MX-5 og Mazda RX-8 R3. Loftmótstaða hefur minnkað niður í 0.28 Cd á fólksbílnum og 0.30 Cd á hlaðbaknum. Endurbætt loftaflsfræði og fínstilling vélalínunnar, auk léttari bíls, gera það að verkum að tekist hefur að minnka útblástur koldíoxíðs verulega og draga úr eldsneytisnotkun.

Veruleg lækkun útblásturs koldíoxíðs


„Hin endurnýjaða Mazda3 verður enn vinsælli en metsölu-forveri hennar,“ að sögn Mark Cameron, sölu- og markaðsstjóra Mazda Motors í Bretlandi.
„Nýja Mazda3 færir flokki smærri fjölskyldubíla fágun, stíl, tækni og fínleika Mazda6 bílsins. Nýja módelið er fallegra, tæknilega fullkomnara og þægilegra. Bæði einstaklingar og fyrirtæki sem kaupa Mazda3 koma til með að njóta góðs af vinnu verkfræðinga Mazda við að lækka verulega útblástur koldíoxíðs. Útblástur 1.6 lítra bensínvélarinnar hefur lækkað úr 162 grömmum í 149 grömm á kílómetra og 2.0 lítra bensínvélin gefur nú frá sér 159 grömm á kílómetra í stað 189 gramma áður, og er það meðal annars nýju stop-start tækninni að þakka. Nýja 1.6 lítra dísilvélin gefur nú frá sér 119 grömm af koldíoxíði á kílómetra í stað 128 gramma áður,“ bætir Cameron við.

Breið vélalína og fjölbreyttur staðalbúnaður


Á þessu ári munu viðskiptavinir Mazda geta valið á milli þriggja bensínvéla og þriggja dísilvéla, sem allar eru finstilltar til að spara sem mest eldsneyti. Í blönduðum akstri er eyðslan frá 5.3 til 5.7 lítrar á hundraði á beinskiptum bíl með bensínvél, og frá 3.7 til 4.7 lítrar á hundraði á bíl með dísilvél. Með sjálfskiptingu og 2.0 lítra vél eyðir bíllinn 6.3 lítrum á hundraði.

Dæmi um tækninýjungar í Mazda3 er meðal annars stop-start kerfi Mazda, i-stop. Það er staðalbúnaður í Mazda3 2ja lítra DISI bensínvélinni og er eina start-stop vélstýrikerfi sem notar brunaorku til að gangsetja vélina. (DISI= bein innspýting neisti start)
Eftir að vélin hefur drepið á sér á rauðu ljósi eða í þungri umferð, endurræsir vélin sig með samspili beinnar innspýtingar, ventlaopnunar, stöðu stimpils og sveifaráss (ásamt snöggu átaki frá startmótor). Samspil við minniháttar breytingar einsog loftflæðihönnun gerir það að verkum að Mazda3 með i-stop sparar allt að 14% eldsneyti í blönduðum akstri miðað við fyrri módel. I-stop ræsir vélina nánast tvisvar sinnum hraðar en mörg af start-stop kerfum samkeppnisaðila.

Þá er öryggið í forgangi í öllum nýjum Mazda3 og eru DSC stöðugleikastýrikerfið og EES neyðarljósabúnaður staðalbúnaður í öllum útgáfum. EES kveikir sjálfkrafa á neyðarljósunum þegar ABS bremsukerfið skynjar neyðarhemlun. Kerfið slekkur síðan aftur á neyðarljósum þegar slakað er á hemlum eða hemlafetli er sleppt.

Fyrsta útgáfa 2009 Mazda3, sem kemur út í maí, verður 1.6S módelið. Meira að segja þessi fyrsta útgáfa er vel búin aukabúnaði, þar á meðal DSC stöðugleikastýrikerfi og TCS spólvörn, sex loftpúðum, fjarstýrðri læsingu, handvirkri loftkælingu og hljóðkerfi með fjórum hátölurum sem virkar með MP3.

Von er á nýja Mazda3 til Íslands í sumar.

Nánari upplýsingar:


• Frétt á vef Mazda

• Vefsíða Mazda3 í Bretlandi
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli