19. maí 2012
Mazda
|
þri. 1. sep. 2009
Mazda leggur áherslu á sparneytni með nýrri vél
´Líklegt þykir að Mazda5 verði með fyrstu Mazda bifreiðunum til að bjóðast með nýju vélinni
Mazda ætlar sér að draga úr eldsneytisnotkun bíla sinna um 30% fyrir árið 2015. Liður í að ná því takmarki er ný sparneytin fjögurra strokka vél, sem væntanleg er á markað árið 2011.
Verulega aukin sparneytni
Seita Kanai, framkvæmdastjóri þróunardeildar Mazda Motor Corporation, segir að endurbætur á vinsælu 2.0 lítra fjögurra strokka vél framleiðandans leiði til þess að sparneytni aukist verulega. Eyðsla í blönduðum akstri minnki úr 10,7 lítrum á hundraði í 7,4 lítra og eyðsla í akstri utan þéttbýlis minnki úr 7,4 lítrum á hundraði í 5,6 lítra.
„Við viljum gera þessa tækni aðgengilega fyrir alla, ekki aðeins þá sem kaupa sérstaklega vistvænar útgáfur bílanna okkar,“ sagði Kanai á blaðamannafundi.
Líklegir kostir
Samkvæmt frétt á vef AutoWeek teljast annaðhvort hinn nýendurbætti MX-5 sportbíll eða Mazda5 fjölskyldubíllinn líklegir kandídatar til að fá nýju vélina fyrstir. Kanai segir öll módel verða komin með nýju vélina fyrir 2015.
Fyrrnefnd 30 prósenta minni eldsneytisnotkun tekur ekki mið af stop-start tækni, endurnýtanlegri bremsuorku eða þróun á tvíorkuvélum, að sögn Kanai. Þótt tvíorkuvélar séu hluti af framtíðarsýn Mazda, þá sé áhersla á slíka tækni minni en á að þróa og bæta hefðbundnar vélar. Framleiðandinn leggur einnig áherslu á þróun rótarý-véla(hverfihreyfla) sinna. Næsta kynslóð verði 1.6 lítra rótarý-vél sem búist er við að dragi úr eldsneytisnotkun um meira en 30%, á sama tíma og hún verði léttari en áður, segir Kanai.
Nánari upplýsingar:
•
Frétt á vef AutoWeek •
Umfjöllun um rótarý vélar á How Stuff Works?