Mazda5 er sjö manna fjölskyldubíll sem slegið hefur í gegn fyrir aksturseiginleika, tækni, öryggi, rými og fleira og fær toppeinkunnir hjá Parker's. Mazda5 er búinn rennihurðum á báðum hliðum sem gerir aðgengi um bílinn eins þægilegt og hægt er að hugsa sér. Evrópska öryggisstofnunin Euro NCAP gefur Mazda5 fimm stjörnur sem einn öruggasta fjölnotabílinn á markaðnum í sínum flokki.
Þægindi og öryggi í fyrirrúmi
Hið innra er Mazda5 meðal annars búinn tveimur fellanlegum borðum fyrir farþega í miðröð, armpúða milli framsæta með hólfi, vönduðum hljómflutningstækjum með sex hátölurum, útihitamæli, farmfestingum í farangursrými og 12V innstungu. Alls hefur þú fimm geymsluhólf í Mazda5, upphituð framsæti, hæðarstillanlegt bílstjórasæti með mjóbaksstillingu, velti- og aðdráttarstýri, loftkælingu, ISOFIX festingar fyrir barnabílstóla í aftursætum og margt fleira sem gerir Mazda5 að fyrirtaks fjölskyldu- og ferðabíl.