Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

05. febrúar 2012
Mazda | þri. 23. mar. 2010

Svalur Mazda MX-5 verður svartur og mattur

Ný sérútgáfa er nú fáanleg af Mazda MX-5 sem er mött og svört.
Mazda MX-5 fagnaði 20 ára afmælinu fyrir stuttu síðan en bíllinn hefur verið gríðarlega vinsæll síðan hann kom fyrst á markað.

Hönnuðir Mazda hafa alla tíð verið duglegir að senda frá sér sérútgáfur af Mazda MX-5 bílnum og hafa margar þeirra hlotið mikið lof. Líklega eru fáar þeirra þó eins spennandi og þessi sem nú kemur frá Mazda því þar er hinn vinalegi sportbíll allt í einu orðin mun vígalegri en fólk á að venjast.

Sérútgáfan er send út í tilefni 20 ára afmælis Mazda MX-5 sem enn er verið að halda upp á. Heiti sérútgáfunnar er MX-5 Matte and Black Special Edition og bíllinn eins og heitið gefur til kynna allur svartur en að auki mattur.

Mattur, svartur, og glimrandi

Undir húddinu er sama vél og í grunnútgáfu Mazda MX-5, hin trausta 160 hestafla og fjögurra strokka vél sem vinsælust er í þessari kynslóð MX-5.

Að innan hefur bíllinn verið skreyttur með kristöllum og steinum en enn sem komið er hafa engar myndir borist af því. Að utan er þó hægt að fullyrða að bíllinn er afar svalur og glæsilegur. Þó er ekki víst að öllum sé gefið um skreytingarnar að innan þó á sama hátt sé það alveg gefið að einhverjum muni líka þær.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli