Það eru því tímamót að fá þennan vinsæla bíl til landsins enda þykir Mazda3 vera skemmtilega hannaður og áreiðanlegur og eins er hann þekktur fyrir frábæra aksturseiginleika. Reyndar er það svo að þriðji hver bíll sem Mazda selur er Mazda3 einmitt vegna þessara eftirsóknarverðu eiginleika.
Nokkrir Mazda3 eru komnir til landsins og verða tveir þeirra til sýnis í sýningarsal Mazda að Bíldshöfða 8 á laugardaginn milli kl. 12-16 en einnig verður hægt að fá að reynsluaka bílnum á staðnum og því verður þriðji bíllinn úti í akstri. Um er að ræða fimm dyra hallbaka að þessu sinni en fernra dyra stallbakar munu koma til landsins síðar, væntanlega með haustinu.
Það er engin tilviljun að þriðji hver bíll sem Mazda selur er af gerðinni Mazda3. Mazda3 hefur orð á sér fyrir að bjóða fullkomið jafnvægi á milli fallegrar hönnunar, frábærra akturseiginleika, vandaðrar smíði, mikils áreiðanleika og gleði þá sem er einmitt einkennandi fyrir Mazda bíla.
Mazda3 er bíll sem getur margt mjög vel enda kannski ekki undarlegt þegar heiti bílsins er haft í huga. 3 er nefnilega töfratala, líkt og 7,9 og 13 og hefur talan jafnvel verið talin heilög. Algengt er að þrisvar á ári skuli halda hátíðar og þrenningar eru þekktar víðsvegar um heiminn hvort sem um er að ræða í fornri trú eða trú nær okkur í tíma.
Hönnuðir Mazda3 hafa lagt mikið á sig til að standa undir þeim væntingum sem gerðar eru til tölunnar þrír og nota hana í heiti bílsins. Útlit bílsins er algjörlega endurhannað og eru hönnunareinkenni sótt í magnaða hugmyndabíla eins og Mazda Kiyora og Mazda Furai en einnig má sjá látbragð Mazda RX-8 í brotunum í brettum bílsins og því sker Mazda3 sig úr fjöldanum með frísklegri hönnun.
Hönnun bílsins ristir reyndar dýpra en augað nemur. Fagrar línur bílsins hylja nefnilega þá staðreynd að hinn nýi Mazda3 er með minnstu loftmótsstöðuna í sínum flokki. Smíði bílsins nýtur einnig þess besta sem Japanir bjóða upp á - vandaða smíði. Innréttingar bílsins eru mjög gæðalegar og hönnun og samsetning bílsins tryggir að ökumaður á að geta liðið áfram í eins mikilli þögn og þægindum og kostur er.
Þá eru aksturseiginleikar bílsins framúrskarandi eins og vera ber með Mazda. Í boði verða tvær bensínvélar, 1,6 lítra 105 hestafla vél sem verður mjög sparneytin og losar 149 g/km af koldíoxíði og 2,0 lítra vél sem skilar 150 hestöflum.
Þegar haft er í huga að Mazda3 er með rúmgóða farangursgeymslu sem rúmar 340 lítra og að Mazda3 hefur nýlega náð fimm stjörnum af fimm mögulegum í árekstrarprófunum Euro NCAP þá má vera ljóst að um áhugaverðan bíl er að ræða. Í Bandaríkjunum er Mazda3 einnig talin vera einn af öruggustu bílunum í sínum flokki.
Útbúnaður Mazda3 er vel sniðinn að þörfum Íslendinga. Meðal annars má fá nýstárlegan búnað eins og beygjuframljós og Xenon ljós sem yfirleitt finnast ekki í bílum í þessum stærðarflokki. Þá er upplýsingakerfi bílsins einstaklega einfalt og fljótlegt í notkun en mikil vinna hefur verið lögð í að gera það sem aðgengilegast fyrir breiðan hóp notenda.
Mazda3 GO HB 1,6 bensín með fimm gíra beinskiptingu kostar frá kr. 3.650.000 og er hann því á mjög góðu verði miðað við japönsku samkeppnina. Mazda3 er því skemmtilegur og spennandi, vel smíðaður og áreiðanlegur og á hagstæðu verði. Ennfremur er ástæða til að vekja athygli á því að hægt er að sérpanta Mazda3 og þá fæst 4% sérpöntunarafsláttur frá listaverði.