Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

05. febrúar 2012
Mazda | fös. 16. apr. 2010

Mazda3 frumsýning á morgun hjá Brimborg Bíldshöfða 8

Komdu og reynsluaktu Mazda3 á frumsýningu á morgun milli 12 og 16.
Mazda3 er einn vinsælasti bíll japanska framleiðandans. Þriðji hver Mazda bíll sem selst er af gerðinni Mazda3 og Mazda vill ná til sín stærri hluta af sölunni í þessum stærðarflokki bíla. Mazda3 er einmitt verkfærið til þess enda hefur bíllinn verið endurhannaður og er nú í senn afar spennandi og öruggur kostur. Mazda3 hefur fengið topp einkunn fyrir öryggi í Bandaríkjunum og fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá Euro NCAP. Í Mazda3 fæst sá áreiðanleiki sem margir sækjast eftir í japönskum bílum en einnig akstursgleðin og einstök hönnunin sem oftast prýðir Mazda bíla.

Mazda fer sjaldnast troðnar slóðir í sinni hönnun en þó er nýr Mazda3 nokkur breyting frá eldri kynslóð bílsins. Með Mazda3 var sótt mikið í smiðju hönnunardeildar Mazda sem hefur hannað ótrúlega hugmyndabíla eins og Mazda Furai og eins hugmyndabílinn sem Mazda RX-8 er byggður á. Hönnunareinkenni frá þessum einstöku hugmyndabílum finnast líka í Mazda3 eins og sjá má í framsvip bílsins og rennilegu formi hans en Mazda3 er með minnstu loftmótsstöðuna af bílum í sínum flokki.

Hægt verður að reynsluaka bílnum á morgun á milli kl. 12 og 16 og munu söluráðgjafar Brimborgar veita upplýsingar á staðnum. Mazda3 kostar frá kr. 3.650.000 fyrir GO útfærsluna en Brimborg vekur einnig athygli á því að ef bíllinn er sérpantaður þá fæst aukalega 4% sérpöntunarafsláttur.

Komdu, reynsluakstu og fáðu kaffi, kleinur og spjall.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli