Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

05. febrúar 2012
Mazda | fös. 21. maí 2010

Sky tækni Mazda tryggir 30% minni eyðslu 2015

Sky véla- og drifrásarkerfi Mazda mun spara allt að 30% eldsneytis þegar kerfið verður komið í fulla framleiðslu.
Sky tæknin mun koma á markað á næsta ári í Bandaríkjunum en um er að ræða drifbúnað og vélbúnað sem saman mun spara mikla orku og þannig ná fram eldsneytissparnaði. Búnaðurinn sem settur verður á markað á næsta ári mun að öllum líkindum minnka eldsneytiseyðslu um 15% en ná á sama tíma að auka aflið. Þetta er afar ákjósanleg staða fyrir framleiðanda eins og Mazda sem státar af því að bjóða bíla með sportlega eiginleika.

Dísilbílar með Sky tækni á leiðinni

Eins og kunnugt er kjósa Bandaríkjamenn í flestum tilfellum frekar að aka um á bensínbílum en síðustu árin hafa dísilbílar þó verið að ná fótfestu. Mazda hefur um árabil haft sterka stöðu í Bandaríkjunum og vonast fyrirtækið til þess að með því að bjóða dísilvélar með Sky tækni í næstu kynslóð millistærðarbíla í Bandaríkjunum verði hægt að koma Bandaríkjamönnum upp á lag með að kaupa sparneytna dísilbíla.

Það ætti að vera til nokkurs að vinna þar sem Mazda lofar því að með Sky tækninni verði meðaleyðsla dísilbíls í millistærð frá Mazda 5,5 lítrum á hverja hundrað ekna kílómetra en það er geysilega góður árangur fyrir millistærðarbíl sem jafnast á við það sem hægt er að ná í tvinnbílum við kjöraðstæður.

Til samanburðar má geta þess að slík bæting væri 20% umfram núverandi kynslóð millistærðar Mazda bíla sem notast við 2,2 lítra dísilvélar sem þó eru mjög sparneytnar.

Þá mun útblástur bíla með Sky tækninni uppfylla ströngustu mengunarstaðla sem til eru í heiminum meðal annars Tier 2 BIN 5 staðalinn sem notaður er í Norðurríkjum Bandaríkjanna.

Þá er ekki eingöngu staldrað við Sky drifbúnað og vélbúnað í Sky tækninni heldur eru bílar með þeirri tækni einnig straumlínulagaðri og léttari og þannig næst meiri árangur en ella.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli