05. febrúar 2012
Mazda
|
mán. 7. jún. 2010
Mazda6 með nýrri dísilvél
Mazda6 fær andlitslyftingu og nýja dísilvél
Hin margrómaða 2.2 lítra dísilvél fæst í þremur útgáfum: 129, 163 og 180 hestafla. Vélarnar eru búnar ýmsum tækninýjungum, sem gera það að verkum að þær eyða minna eldsneyti, það heyrist minna í þeim og togkrafturinn hefur aukist, meira að segja við lágan snúningshraða.
Hreinni og sterkari
Þessar tæknilegu breytingar á 2.2 lítra dísilvélum Mazda gera það að verkum að þær standast allar kröfur samkvæmt Euro 5 mengunarstaðlinum, en Mazda hefur unnið að því að minnka eldsneytisnotkun og hljóðmengun og auka togkraftinn umfram það. Niðurstaðan er að Mazda6 2.2 DE eyðir nú 5,2 lítrum á hverjum hundrað kílómetrum, en eldri kynslóð vélarinnar eyddi 5,4 lítrum á hundraði, og hið dæmigerða dísilvélarhljóð við ræsingu og í lausagangi er mun lægra en áður. Ný og smærri forþjappa er fljótari að bregðast við þannig að aflið nýtist á skilvirkari hátt.
Breytingarnar eru áþreifanlegastar í aflminnstu vélinni. Hún er 129 hestöfl í stað 125 áður, en snúningsátakið eykst úr 310 í 340 Nm við 1800 snúninga. Hinar tvær vélarnar eru annars vegar 163 hestöfl og hins vegar 180 hestöfl, en snúningsátakið er óbreytt, 360 og 400 Nm við 1800 snúninga. Þær eyða báðar 5,4 lítrum á hundraði í blönduðum akstri.