Brimborg hefur nú þegar hafið sölu á varahlutum í Mazda. Verið er að byggja upp öflugan lager og verður lögð áhersla á mjög hátt þjónustustig og hagstætt verð. Verð á flestum gerðum varahluta hefur nú þegar lækkað verulega. Öflug sérpöntunarþjónusta verður í boði og hafa þegar margir Mazda eigendur og bílaverkstæði nýtt sér þá þjónustu. Vörustjóri varahluta og aukahluta er Guðmundur Rúnar Matthíasson s: 515-7159, grunar@brimborg.is. Hafðu strax samband við Guðmund Rúnar ef þig vantar varahluti í Mazda.