05. febrúar 2012
Mazda
|
fös. 23. júl. 2010
Sterkur orðrómur um nýjan Mazda RX7
Þeir eru margir sem sjá á eftir Mazda RX7 bílnum en innan fárra ára geta þeir vonandi tekið gleði sína á ný.
Þriðja kynslóð
Mazda RX7 var í framleiðslu frá 1992 og fram til ársins 2002 og þótti bíllinn alla tíð bera af öðrum í aksturseiginleikum. Það er ekki undarlegt þar sem verkfræðingar og hönnuðir Mazda lögðu á sig gríðarlega vinnu til að hreinsa allt frá bílnum sem truflað gæti akstursupplifunina og í sönnum RX stíl þá var bíllinn ennfremur útbúinn hinni sérstöku
Wankel vél. Ástæða þess að
Mazda valdi Wankel vél fyrir þennan hreinræktaða sportbíl er sú að Wankel vélar skila gríðarlega miklu afli þrátt fyrir að vera bæði afar léttar og fyrirferðarlitlar. Með því móti var hægt að þróa bíl sem byggi yfir aksturseiginleikum sem hreinlega væri ekki hægt að leika eftir.
Það er á þessum grunni sem þriðja kynslóð Mazda RX7 skapaði sér sterkan grunn fylgjenda sem svo syrgðu bílinn þegar hætt var að framleiða hann.
Engin annar bílaframleiðandi bauð upp á það sem Mazda hafði boðið með RX7. Mazda RX7 atti því einatt kappi við þá dýrustu og öflugustu, þrátt fyrir að vera bæði fremur ódýr og aðgengilegur.
Motor Trend valdi RX7 sem innflutta bíl ársins árið 1993, Playboy
tók RX7 framyfir Dodge Viper í reynsluakstri árið 1993 og öll árin sem RX7 var til sölu í Bandaríkjunum var hann á topp tíu lista
Car and Driver yfir bestu sportbílana. Það má reyndar geta þess að á núverandi lista Car and Driver fyrir 2010 eru tveir Mazda bílar,
Mazda MX5 og
Mazda 3/Mazdaspeed 3.
Löng hefð
Fyrsti RX7 bíllinn leit dagsins ljós árið 1978, þá þegar afar forvitnilegur og nútímalegur bíll. Hönnun þriðju kynslóðarinnar hófst hinsvegar árið 1986 en þá var japönsk sportbílahönnun á mikilli siglingu og önnur kynslóð bílsins hafði getið sér góðs orðs. Keppinautar Mazda sendu út hvert tækni afrekið á fætur öðru en Takaharu Kobayakawa sem hafði umsjón með verkefninu hjá Mazda taldi að keppinautarnir færu villu vegar. Takaharu taldi að upprunalegi tilgangur bíla keppinautanna myndi týnast í allri tækniþróuninni og því varð úr að ákveðið var að hafa þriðju kynslóð RX7 eins hreina með tilliti til akstursánægju og hægt væri.
Mazda RX7 bjó yfir 1,3 lítra vél sem skilaði 255 hestöflum og 280 hestöflum undir það síðasta. Þessu afli náði vélin með hjálp tveggja túrbína frá Hitachi og með 50/50 þyngdardreyfingunni og lítilli þynd fengust einfaldlega framúrskarandi aksturseiginleikar.
Mazda lagði ennfremur mikið á sig til að létta bílinn. Notað var hástyrktar stál, léttmálmar og allar rafleiðslur voru styttar eins og kostur var. Meira að segja sérhannaði hljómtækjaframleiðandinn
Bose hljóðkerfi í bílinn sem var eitt það léttasta sem fékkst í bíla á þeim tíma.
Þriðja kynslóðin stóð nærri upprunalega RX7 bílnum frá 1978 í flestum atriðum og fangaði þá hugmyndafræði sem Takaharu lagði af stað með afar vel.
Síðan 2002 hefur RX7 hinsvegar ekki verið í framleiðslu en merkjum hans hefur þó verið haldið á lofti í hinum einstaka
Mazda RX8. Sá bíll er þó ekki eiginlegur arftaki RX7, enda hannaður sem fjögurra manna, og fernra dyra sportbíll fremur en hreinræktaður Coupé.
Það má því segja að síðan 2002 hafi hörðustu aðdáendur sportbílalínu Mazda beðið nýs RX7 með óþreyju og enn munu þeir þurfa að bíða, vonandi þó ekki lengi til viðbótar.
Mun RX7 koma innan fárra ára?
Sá orðrómur hefur nefnilega orðið sífellt háværari undanfarna mánuði að Mazda hafi raunverulega í hyggju að smíða fjórðu kynslóð RX7 og nýjustu fréttir staðfesta að verið er að vinna í verkefninu innanhúss hjá Mazda.
Þetta eru afar góðar fréttir fyrir bílaáhugafólk en áhyggjuefni fyrir aðra sportbílaframleiðendur því þegar Mazda lætur til sín taka í sportbíladeildinni hlustar allur bílaheimurinn eins og hann leggur sig.
Samkvæmt því sem næst verður komið hyggst Mazda halda sig við upprunalegu hugmyndina að bílnum sem þýðir í raun að næsta kynslóð bílsins verður málamiðlanalaus sportbíll, líkt og litli bróðirinn
Mazda MX5.
Sem fyrr verður næsta kynslóð með Wankel vél og eins og er reikna aðdáendur Mazda með að bíllinn komi á markað árið 2013. Bíllinn verður að venju afturhjóladrifinn en ein furðulegasta nýjungin verður væntanlega rafdrifin túrbína, þ.e. ef eitthvað er að marka orðróminn.
Hvað sem öðru líður er ljóst að aðdáendur Mazda sakna RX7 bílsins mikið og bílaheimurinn myndi eflaust gleðjast að sjá nýja kynslóð bílsins koma á markað.