Nú í desember kemur Mazda6 MPS AWD til Brimborgar á einstöku kynningarverði eða á kr. 3.390.000. Mazda6 MPS er búinn 2,3 DISI Turbo vél. sem er hvorki meira né minna en 260 hestöfl og er hröðunin frá 0 til 100 aðeins 6.6 sek.
Þessi glæsilegi aldrifsbíll er vel búinn og má í því sambandi m.a. nefna 18" álfelgur, BOSE hljómflutningskerfi með bassaboxi, Xenon framljós, leðurklædd sportsæti, regnskynjara fyrir rúðuþurkur, vindkljúfasett, DSC stöðugleikastýringu, sjálfvirka loftkælingu, 6 gíra handskiptan gírkassa, „Active Torque Split" fjórhjóladrif og margt fleira spennandi.
Við fáum takmarkað magn af þessari frábæru bifreið. Ekki láta hana framhjá þér fara. Skoðaðu Mazda6 nánar hér.