19. maí 2012
Mazda
|
þri. 9. nóv. 2010
Mazda í keppnisstuði á SEMA sýningunni
Mazda sýnir heilt stóð af spennandi bílum á SEMA aukahlutasýningunni í Las Vegas.
Mazda á sér ríka keppnissögu og er lítið að fela það á hinni þekktu aukahluta- og bílasýningu
SEMA sem nú er haldin í Bandaríkjunum. Allt frá árinu 1968 hefur Mazda tekið virkan þátt í kappakstri en þá náði
Mazda Cosmo 110-S fjórða sæti í 84 stunda þolkappakstrinum
Marathon de la Route á
Nürburgring. Mazda Cosmo 110-S var einskonar prófunarbíll fyrir
Wankel vélar Mazda sem enn eru framleiddar bæði fyrir kappaksturs og götubíla Mazda.
SEMA sýningin er haldin af SEMA samtökunum sem eru 46 ára gömul samtök aukahlutaframleiðenda í Bandaríkjunm og er vanalega mikið um dýrðir. Oftast eru það aukahlutaframleiðendurnir sem taka sig til og breyta framleiðslubílum bílaframleiðenda, oft með misjöfnum árangri, en svo kemur það fyrir að bílaframleiðendurnir sjálfir taka sig til og breyta sínum eigin bílum fyrir sýninguna. Þetta er það sem Mazda hefur gert, og það með svona glæsilegum árangri.
Sigursælir Mazda bílar
Mazda hefur um langt skeið lagt áherslu á það að sportlegir eiginleikar séu í fyrirrúmi í öllum bílum sem Mazda framleiðir. Það á Mazda ekki langt að sækja því Mazda framleiðir mest selda sportbíl í heimi, hinn sívinsæla
Mazda MX-5 sem stundum er einnig kallaður
Miata. Mazda mætti því til leiks í Las Vegas, þar sem SEMA sýningin er haldin, með helling af bílum sem hefur verið breytt annaðhvort fyrir brautarakstur annað slagið eða fyrir kappakstur. Bílarnir eru af gerðunum
Mazda2, MX-5,
Mazda3 og einnig
RX-8 kappakstursbíll sem var eiginlega nýkominn úr keppni. Mazda RX-8 bíllinn keppti í
Grand-Am GT mótaröðinni og bar bíllinn sigur úr býtum í sex keppnum af tólf.
Afrakstur Mazda er ákaflega forvitnilegur fyrir bíladellufólkið og má segja að Mazda sýni enn einu sinni að það sé ekki alltaf aflið sem skiptir öllu máli því vel má gera öflugan kappakstursbíl úr nettum bíl eins og Mazda2, með réttu breytingunum.
Mazda Evil Track
Það má segja að Mazda hafi einnig verið með húmorinn á réttum stað því bílarnir fengu skondin heiti.
Mazda Evil Track, eða ”illi brautarbíllinn”, er af gerðinni Mazda2 og er bíllinn ætlaður viðskiptavinum sem hyggja á þátttöku í kappakstri á eigin vegum. Bíllinn uppfyllir keppnisreglur bæði
SCCA og
NASA og er hann útbúinn vindskeiðum allan hringinn og stillanlegu
H&R fjörðunarkerfi, veltibúri frá
AWR,
Sparco Circuit Pro körfustólum, stýri og öryggisbeltum og
Magnaflow pústkerfi svo eitthvað sé nefnt. Mazda sýnir einnig öllu mildari götuútgáfu af þessum bíl sem hefur fengið heitið
Mazda2 Street.
Þá sýnir Mazda einnig óvenju glæsilegan
Mazda MX-5 Super20 sem er afmælisútgáfa af blæjusportbílnum vinsæla. Sá bíll fær harðan topp, létta veltigrind, ýmsar útlitsbreytingar en ekki síst þá fær bíllinn heljarinnar yfirferð á vélinni sem fær
Cosworth vél með keflablásara. Ekki fer neinum sögum af því hvaða afli vélin á að skila en gera má ráð fyrir um 220 hestöflum og afar góðu viðbragði. Breytingarnar eru að sjálfsögðu mun fleiri en of langt mál væri að telja þær upp hér. Mazda sýnir einnig
MX-5 Cup Car sem er
vinsælasti keppnisbíll í heimi, eins og er.
Mazda sýnir einnig hinn broshýra meðlim Mazda fjölskyldunnar MAZDA3 í
Redline Time Attack útgáfu sem eru verulega mikið breyttir bílar sem geta jafnvel skákað
GT2 keppnisbílum í tímatökum. Bílarnir eru léttir eins mikið og mögulegt er með notkun koltrefjaefna og búa þeir yfir allt að 500 hestafla vélum sem geta komið bílunum hátt í 290 km/klst. Látlausari útgáfan af þessum bíl er
Mazda3 Turbo Sedan sem notast við 10 punda þrýsting túrbínunnar til að skila rúmum 250 hestöflum úr 2,5 lítra vél bílsins. Eins og með hina bílana hefur Mazda lagt mikla vinnu í útlit, fjöðrun og öryggisatriði og er bíllinn gríðarlega vel búinn til átaka.
Hinn frækni Mazda RX-8 keppnisbíll
Einn áhugaverðasti bíllinn fyrir þá sem fylgjast eitthvað með kappakstri hlýtur hinsvegar að vera
SpeedSource Grand Am GT Mazda RX-8 en bíllinn er byggður á röragrind og útbúinn þriggja rótora Wankel vél af gerðinni
20B Renesis sem getur snúist yfir níu þúsund snúninga á mínútu.
20B Renesis vélin er einungis 1,3 lítrar að rúmmáli en þrátt fyrir það getur vélin skilað nokkuð leikandi 350 hestöflum. Í Le Mans kappakstrinum 1991 sigraði Mazda með samskonar vél sem skilaði 690 hestöflum en geta 20B vélarinnar er gríðarleg enda hafa þær verið mældar allt upp í
1664 hestöfl.