Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

19. maí 2012
Mazda | fös. 15. júl. 2011

Veftímaritið Autoblog tekur þátt í kappakstri á Mazda MX-5

Mazda MX-5 bíllinn sem Autoblog og Flyin' Miata munu keppa á í Targa Newfoundland kappakstrinum.

Í tíu ár hefur Targa Newfoundland fangað athygli bílaáhugafólks um allan heim enda er slíkur viðburður mikið fyrir augað og eyrað. Á um það bil viku aka keppendur um stórfenglegt landslag á allskonar bílum, eina 2200 kílómetra. Kappaksturinn er eini þolaksturinn af þessu tagi sem haldin er í Norður Ameríku en Targa kappakstur hefur um áratugi verið gríðarlega vinsæll í Suður Ameríku. Keppendur koma víða að. Bandaríska veftímaritið Autoblog ætlar meðal annarra að tefla fram liði og mun kappakstursbíllinn verða hinn goðsagnakenndi Mazda MX-5.

Autoblog mun keppa með Flyin‘ Miata liðinu sem býr yfir Mazda MX-5 með keflablásara sem skilar um 240 hestöflum. Með slíkt magn hestafla um borð verður hinn knái sportbíll gríðarlega öflugur án þess að aflið komi niður á áreiðanleika sem er lykilatriði í öllum þolakstri.

Bíllinn er af 2006 árgerð og gæti orðið sigurstranglegur, en að sigra er þó ekki aðalatriðið í kappakstri sem þessum. Ekki síður snýst þátttakan um að njóta akstursins og allra hinna bílanna sem keppa. Um sannkallaða fjársjóðskistu draumabíla er að ræða og má sjá nánast allar gerðir af bílum frá nánast öllum áratugum í stórum keppnum sem þessum.

Eigendur Flyin‘ Miata liðsins munu einnig tefla fram gömlum Mazda MX-5 frá árinu 1994 sem hefur áður keppt í kappakstrinum. Sá bíll hefur reyndar gengið í gegnum verulegar breytingar og býr nú yfir 400 hestafla V8 vél en nokkuð er um slíkar breytingar vestanhafs enda býr MX-5 yfir vandaðri og stífri yfirbyggingu sem er talin góður grunnur.

Þegar tíminn kemur mun Autoblog færa tíðar fréttir af framvindu keppninnar og það má einnig vænta þess að spennandi myndir muni fylgja umfjölluninni.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli