23. febrúar 2012
Mazda
|
fös. 7. okt. 2011
Mazda RX-8 kveður með hvelli
Mazda RX-8 kveður með hvelli.
Hinn afar sérstaki
Mazda RX-8 mun bráðum víkja úr vörulínu Mazda.
RX bílarnir frá Mazda hafa verið fánaberar sérstakra eiginleika frá því að þeir komu fyrst fram á sjónarsviðið. Með RX bílunum, sérstaklega RX-7 og svo RX-8 hefur Mazda sýnt sportbílaframleiðendum hvernig ný hugsun getur skilað afurð sem tekur fyrst og fremst tillit til aksturseiginleika, án málamiðlana.
Wankel vélin í RX-8 er stór þáttur í sérstöðu Mazda. Það er því við hæfi að RX-8 kveðji með stíl en síðasta útgáfa bílsins mun fá heitið Spirit og aðeins verða þúsund eintök framleidd sem eflaust verður slegist um.
Bíllinn fer í gegnum nokkrar breytingar í þessari síðustu útgáfu sinni. Ný fram og afturljós verða nokkuð áberandi, nýir
Recaro körfustólar munu halda ökumanni og farþegum á sínum stað og ýmiskonar smáatriði verða tekin í gegn í bílnum. Til dæmis mun miðjustokkurinn þar sem drifskaftið liggur verða lakkaður með háglans píanólakki.
Beinskipti bíllinn fær 225/40R19 dekk á sérhannaðar álfelgur sem punktinn yfir i-ið.