23. febrúar 2012
Mazda
|
fös. 11. nóv. 2011
Hugmyndabíll Mazda heimsfrumsýndur í Tókýó
Framtíðar flaggskip Mazda gæti byggt á Mazda Takeri hugmyndabílnum.
Hugmyndabíllinn sem finnur.is fjallar um þykir endurspegla þann styrk og fágun sem nýjasta hönnunaraðferð byggir á, hin svokallaða
KODO aðferð.
Greinarhöfundur bendir á að öll hönnun bílsins taki mið af nýjustu
Sky Active tækni verkfræðinga
Mazda og að bremsukerfi bílsins sé hannað til að endurnýta þá hreyfiorku sem leysist úr læðingi við hemlun með því að breyta henni í rafmagn sem rafkerfi bílsins nýtir. „Með þessu móti fæst bæði eldsneytissparnaður vegna minna álags á vélina og orkusparnaður þar sem rafallinn þarf ekki að framleiða rafmagn í jafn miklu mæli,“ bendir greinarhöfundur á. Mazda Takeri er útbúinn með léttri og sterkri grind. Loftmótstaða bílsins er afar lág auk þess sem hann hefur fengið nýjan undirvagn sem gerir honum kleift að ná fram umtalsverðum eldsneytissparnaði og státa af framúrskarandi aksturseiginleikum og þægindum eins og fram kemur í greininni.
Tákn um nýja tíma
Á
Finni.is er haft eftir framkvæmda- og markaðsstjóra Mazda hjá
Brimborg, Þórði Jónssyni, er um virkilega spennandi bíl að ræða. „Eins og framleiðandinn setur þetta fram er þetta fyrst og fremst hugmyndabíll, en auðvitað má búast við að eitthvað úr honum verði nýtt í aðra nýja bíla frá Mazda á komandi árum. Oft á sú þróun sér stað á tveimur til þremur árum.“ Í viðtalinu bendir Þórður jafnframt á að hönnun bílsins byggi á Sky Active tækni sem felst í endurhönnun jafnt á vél bílsins sem og sjálfskiptingu, gírkassa, driflínu og undirvagni. Með þessu vill Mazda leitast við að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda án þess þó að slíkt sé á kostnað aksturseiginleika og framúrskarandi áreiðanleika líkt og Þórður bendir á.