23. febrúar 2012
Mazda
|
fös. 18. nóv. 2011
Mazda sýnir CX-5 sportjeppann í Los Angeles
Nýr Mazda CX-5 verður brautryðjandi í sparneytnum bensínvélum.
Mazda CX-5 er algerlega ný kynslóð af bíl frá
Mazda og fellur bíllinn í svokallaðan Crossover flokk, eða sportjeppa flokk. Með
Skyactive tækni Mazda mun bíllinn fara í hagstæðan tollaflokk þegar hann er væntanlegur til Íslands seinni hluta næsta árs.
Í ljósi frétta af síhækkandi dísilverði er Mazda CX-5 réttur bíll á réttum tíma. Með hámarks nýtingu á eldsneyti fer CX-5 í aðeins 120 g/km af koldíoxíði. Það verður erfitt að finna sportjeppa eða jeppling sem mun geta státað af því.
Móttökur bílsins á
bílasýningunni í Los Angeles sem nú stendur yfir hafa verið afar góðar. Samkeppnin mun helst koma frá Kia Sportage og Toyota Rav4 en að sögn
Autoblog sem fjallar um bílasýninguna í Los Angeles mun Mazda CX-5 hinsvegar leiða sinn flokk í sparneytni.
Að auki býr Mazda CX-5 að frábærum aksturseiginleikum nokkuð sem Autoblog segir að skorti hjá samkeppninni.
Mazda CX-5 mun fást með 2,0 lítra og 160 hestafla bensínvél og 2,2 lítra 150 hestafla dísilvél. Með 2,2 lítra dísilvélinni og fullkomnu fjórhjóladrifi mun losun koldíoxíðs verða undir 120 g/km en til samanburðar má nefna að helsti keppinautur Mazda í þessum flokki losar 140g/km í blönduðum akstri.