Á stórsýningunni í Brimborg laugardaginn 3. desember er hægt að eignast nýjan Mazda á lækkuðu verði. Sem dæmi um hagstæð kaup á jólatilboðinu má nefna að Mazda2 Advance fæst nú á jólatilboðinu á kr. 2.370.000 en var á kr. 2.490.000 fyrir lækkun. Mazda2 Advance er bæði fáanlegur 5 dyra, beinskiptur, með 1.3i bensínvél sem skilar 84 hestöflum og eldsneytisnotkun er aðeins 5,1 L/100 km. Hann er einnig fáanlegur sjálfskiptur með 1.5i bensínvél sem skilar 102 hestöflum og elsneytisnokun er aðeins 5,8 L/100 km.
Einnig er hægt að fá Mazda6 Premium á frábæru verði en á jólatilboðinu hjá Brimborg fæst hann á aðeins kr. 4.390.000 en var á 4.610.000 kr. fyrir lækkun. Mazda6 Premium er 5 dyra, sjálfskiptur, með 2.0i bensínvél sem skilar 155 hestöflum og eldsneytisnotkun er aðeins 7,6 L/100 km.
Komdu í Brimborg, upplifðu jólastemninguna, skoðaðu úrvalið og nýttu tækifærið til að eignast Mazda á frábæru jólatilboði með allt að 220.000 kr. afslætti. Við erum í sannkölluðu jólaskapi og tökum allar gerðir bíla uppí nýjan Mazda.