Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

23. febrúar 2012
Mazda | fim. 15. des. 2011

Mazda Takeri, hugmyndabíll með fullt af tækninýjungum

Hugmyndabíllinn Mazda Takeri.

Einstakt kerfi til að endurnýta hemlunarorku
Mazda Takeri var nýlega heimsfrumsýndur á bílasýningunni í Tókýó. Hann er fyrsti Mazda bíllinn sem er útbúinn i-ELOOP en það verður innleitt í fólksbíla Mazda sem væntanlegir eru á  markað árið 2012 og mun draga úr bensíneyðslu um allt að 10% í venjulegum akstri.

Kerfi Mazda til að nýta hemlunarorkuna er einstakt þar sem notuð er öflug aflþynna sem getur geymt rafmagn tímabundið. Ólíkt hefðbundnum rafgeymum er hægt að hlaða og afhlaða aflþynnuna sem er notuð í Takeri á mjög skömmum tíma og langvarandi notkun hefur ekki áhrif á gæði hennar. i-ELOOP kerfið umbreytir hreyfiorku bílsins í rafmagn sem er svo notað fyrir miðstöðina, útvarpið og aðra rafmagnsknúða hluti. 

Aflþynnur og spennujafnari
i-ELOOP kerfið notar nýja tegund af rafal með spennu upp á 12-25 volt, rafþynnu með lágri mótstöðu ásamt spennujafnara.i-ELOOP byrjar að endurnýta hreyfiorkuna í sömu andrá og bílstjórinn lyftir fætinum af bensíngjöfinni og hraði bílsins minnkar. Rafall með mismunandi spennustigi eykur spennuna í 25 volt til að hámarka árangurinn áður en rafmagn er sent áfram til hinnar háþróuðu aflþynnu. Þessi aflþynna er sérstaklega hönnuð til notkunar í einkabílum og hægt er að hlaða hana á aðeins nokkrum sekúndum.

Spennujafnarinn dregur úr spennunni frá 25 voltum í 12 volt, áður en rafmagnið fyrir hina ýmsu hluta í bílnum byrjar að eyðast. Kerfið hleður einnig geymi eftir þörfum. i-ELOOP er alltaf í notkun þegar bremsað er sem dregur úr þörf vélarinnar til að nota aukaeldsneyti til að framleiða rafmagn.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli