Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

19. maí 2012
Mazda | mán. 5. des. 2005

Mazda5 fær góða dóma í Morgunblaðinu.

Mazda5 var reynsluekið á dögunum af blaðamanni hjá Morgunblaðinu. Bíllinn fær góða dóma og er með “frísklega takta”.

Kemur þar fram að vélin rótvinni og að hann sé kvikari í hreyfingum en búast mætti við. Vélin er snúningsglöð 2.0 lítra vél og 5 gíra handskiptingu og “merkilega kraftmikill og venst strax mjög vel í akstri”. Einnig hrósar hann hljóðeinangrun bílsins, segir hana með því besta í þessum flokki, vélarhljóð í lágmarki, veg- og vindhljóð hverfandi. Heldur blaðamaður áfram og fær ekki annað sagt en að Mazda5 sé með mest spennandi bílum í þessum flokki.

Meðal öryggisbúnaðar má nefna stöðugleikastýringu og spólvörn, fjóra loftpúða auk loftpúðagardína til sitt hvorrar hliðar.

Greinin birtist í bílablaði Morgunblaðsins, föstudaginn 2 desember, 2005.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli