Leitaðu

Smelltu á flokk

Mazda frétt 

19. maí 2012
Mazda | þri. 15. jan. 2008

Nýr og endurhannaður Mazda2 frumsýndur á laugardag

Nýr Mazda2 verður kynntur formlega hjá Brimborg laugardaginn 19. janúar.
Nýr Mazda2 verður kynntur formlega hjá Brimborg laugardaginn 19. janúar.
Nýi og endurhannaði smábíllinn Mazda2 verður frumsýndur formlega næstkomandi laugardag, 19. janúar, hjá Brimborg í Reykjavík og á Akureyri. Nýr Mazda2 er heldur minni en eldri gerð hans og þó búinn meiri öryggisbúnaði og meira rými fyrir farþega. Þá er hann einnig léttari en áður sem gerir hann hagkvæmari í rekstri. Bíllinn hefur þegar fengið lofsamlega dóma hjá bílagagnrýnendum erlendis fyrir hönnun og tækni og hefur sérstaklega verið tekið til þess hve rúmgóður hann er og búinn góðri innréttingu.

Gjörbreytt útlit

Markmið hönnuðanna var að skapa einstakt og krafmikið útlit sem endurspeglaði sportlegt yfirbragð bílsins. Þess vegna er skörpum og mjúkum útlínum blandað saman. Útkoman er kraftmikill heildarsvipur, jafnt að utan sem innan. Mazda2 var valinn Bíll ársins 2008 í Danmörku og var í öðru sæti í vali á Bíl ársins 2008 í Evrópu.

100 kg léttari

Annað meginmarkmið hönnuða Mazda2 var að létta bílinn frá því sem var án þess að draga úr öryggi hans í umferðinni. Er bíllinn nú aðeins 955 kg eða 100 kg léttari en fyrirrennarinn, þrátt fyrir að búið sé að auka öryggisbúnað hans. Þessi 100 kíló sem horfin eru þykja skila sér afar vel í betri og enn skemmtilegri aksturseiginleikum.

Minni útblástur

Einnig hefur Mazda náð góðum árangri við að draga úr útblæstri skaðlegra lofttegunda frá bílum sínum. Er hinn nýi Mazda2 þar engin undantekning enda er útblásturinn nú 22% minni en í eldri gerð, sem er með því minnsta í smábílaflokknum.

Val um tvær hagkvæmar vélar

Nýr Mazda2 er hjá Brimborg boðinn með tveimur fjögurra strokka, 16 ventla bensínvélum:

• 1,3 lítra, 86 hestafla vél - eyðsla 5,4 l/100 km
• 1,5 lítra, 103 hestafla vél - eyðsla 5,9 l/100 km

Góður staðal- og öryggisbúnaður

Nýr Mazda2 er búinn góðum staðal- og öryggisbúnaði og má í því sambandi nefna loftkælingu, rafstýrða og upphitaða útispegla, upphituð framsæti, iPod-tengi og mp3 afspilun, rafmagn í framrúðum, DSC stöðugleikastýrikerfi, ABS hemlakerfi með EBD hemlajöfnun, ISO-fix barnabílstólafestingar, sex loftpúða og loftpúðagardínur, öryggisbeltaaðvörun og öryggisbeltastrekkjara og fleira. Dýrari gerð bílsins er að auki búin rafmagni í öllum rúðum, hraðastilli og fjölmörgum öðrum þægindaauka. Þess má geta hér til gamans að blaðamaður AutoCar nefndi sérstaklega rafstýrið í bílnum og taldi það hið besta sinnar tegundar sem hann hefði prófað.

Euro NCAP

Bíllinn var nýlega tekinn til skoðunar hjá evrópsku öryggisstofnuninni Euro NCAP og fékk hann fullt hús stjarna – fimm að tölu fyrir afgerandi öryggi fullorðinna, barna og gangandi vegfarenda.

Frábærar umsagnir

Bílagagnrýnendur erlendis hafa farið mjög lofsamlegum orðum um hinn nýja og endurhannaða Mazda2. Hefur m.a. verið sagt hann búi yfir firnagóðum aksturseiginleikum, stílfáguðu útliti og skemmtilegri og viðbragðsgóðum vélum, sem geri að verkum að hann komi sem nýr og spennandi valkostur á evrópskan smábílamarkað. Á vef Brimborgar eru fjölmargar þýddar og endursagðar fréttir af erlendum umsögnum um Mazda2.

Komdu og prófaðu milli kl. 12 og 16

Á frumsýningunni nk. laugardag í Reykjavík og á Akureyri verða reynsluakstursbílar á staðnum. Komdu og prófaðu einstakan smábíl sem farið hefur sigurför um gervalla Evrópu. Opið verður milli kl. 12 og 16.

Nánari upplýsingar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli