Leitaðu

Smelltu á flokk

MX-5 • Um Mazda MX-5 

19. maí 2012

Skoða PDF: Mazda MX-5 bæklingur

Mazda MX-5, er bara gaman

FÁIR litlir sportbílar hafa náð sömu hylli og Mazda MX-5, m.a. vegna frábærra aksturseiginleika og klassísks útlits. Á bílasýningunni í Genf snemma árs 2005 sló bíllinn rækilega í gegn hjá blaðamönnum og ljósmyndurum – eins og ævinlega. Reyndar er Mazda MX-5 söluhæsti tveggja sæta opni sportbíllinn í heimi og stimplaði sig sem slíkur í Heimsmetabók Guinness árið 2000. Mazda MX-5 er mest dýrkaði opni sportbíllinn. Ekki bíða lengur en þú þarft með að láta drauminn rætast. Stökktu á vinsælasta tveggja sæta sportbíl heims.

Sestu við stýrið Mazda MX-5 og þú færð umsvifalaust réttu tilfinninguna fyrir veginum. Hér sameinast eðalkostir sportbílsins: gríðarlegt viðbragð og hárfín stjórn. Líttu á hönnunina, sjón er sögu ríkari. Upplifun segir meira en mörg orð. Það er ekki að ástæðulausu sem Mazda MX-5 er löngu orðinn klassískur og nú hefur innréttingin fengið enn kröftugra yfirbragð en áður til að undirstrika á ótvíræðan hátt titil Mazda MX-5 sem vinsælasti sportbíll heims. Akstur opins tveggja sæta sportbíls eins og mazda MX-5 er bara gaman – en það er ekki nóg! Það verður að vera öruggt líka og hjá Mazda eru öryggismálin tekin föstum tökum. Þú getur treyst því. Þess vegna er Mazda MX-5 t.d. búinn afar öflugu og háþróuðu bremsukerfi, öryggispúðum, Isofix barnafestingum ásamt fjölda annarra mikilvægra atriða sem snúa að öryggi þínu og farþega.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli