Ef þú mætir utan opnunartíma þá getur þú skilað lyklinum í lúguna. Einfalt og þægilegt.
Verkstæði, utan höfuðborgarsvæðisins.
Þjónustuaðilar, verkstæði sem þjónusta bílamerki Brimborgar, eru víða um land og veita góða þjónustu í samræmi við kröfur Brimborgar.
Öll Mazda verkstæði Brimborgar státa af fjölda faglærðra bifvélavirkja sem hafa áratuga reynslu af viðgerðum á Mazda bílum. Bifvélavirkjar Mazda verkstæða Brimborgar fá reglulega þjálfun í nýjustu tækni sem tryggir að Mazda bíllinn þinn er ávallt í topp standi.
Góð þjálfun og áralöng reynsla af viðgerðum á Mazda skilar sér í lægri viðgerðakostnaði því viðgerðin gengur hraðar fyrir sig. Viðgerðir á Mazda verkstæðum Brimborgar eru með tveggja ára lögbundinni ábyrgð.
Þú getur pantað tíma á verkstæði Mazda hér á vefnum. Í samstarfi við Vélaland verkstæði getur þú nú bókað tíma nálægt þér. Við erum á þremur stöðum: Mazda verkstæði Bíldshöfða 8, Vélaland verkstæði Jafnaseli 6 í Breiðholti og Vélaland verkstæði Dalshrauni 5 Hafnarfirði.
Þegar þú hefur bókað tíma þá færð þú mjög fljótlega staðfestingu í sms með nánari leiðbeiningum. Síðan munum við minna þig á tímann fjórum dögum áður en þú átt að mæta og aftur minnum við á daginn áður. Þú finnur lausan tíma, bókar tíma eða afbókar hjá verkstæðum Mazda hér: